2.6.2006

Almennar stjórnmálaumræður laugardaginn 3. júní kl. 13.30

Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur hefur 15 mínútur til umráða sem skiptast í tvær umferðir. Röð flokkanna í báðum umferðum er þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin - grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn. Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrri umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Mörður Árnason, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í seinni umferð. Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða í fyrri umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, og í seinni umferð Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, í þeirri seinni Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður. Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Birkir J. Jónsson 9. þm. Norðausturkjördæmis, en Guðjón Ólafur Jónsson, 11. Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð. Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrri umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, en í seinni umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis.